|
Já gott fólk, ég á MySpace
|
18.05.2007 11:42:27 / helgarutm
Hey, ég ætlaði bara að henda inn lítilli
færslu áður en ég fer uppí skóla á fund með
útskriftarnemunum. Ég áorkaði það að vakna 05:45 til að fara
í Yoga í morgun og gæti ekki verið stoltari af sjálfum mér
Eftir það fór ég og Hannes uppí Háskóla til þess að skila inn
umsóknunum okkar fyrir inntökuprófið og hittum kónginn hann
Kristján Flygering sem var að ljúka við að skila sinna.
EN þessi dagur er merkisdagur fyrir utan það að ég loksins
drullaðist til að vakna á réttum tíma fyrir Yoga. Í dag
fyrir 7 árum síðan hin örlagaríka dag 18. maí skeði
nokkuð merkilegur atburður, fyrir utan það að það var fyrsta
prófið í íslenku byrjaði ég og Fjölnir saman og höfum verið
saman alla tíð. Mig langaði bara til þess að þakka
Fjölni fyrir öll þessi yndislegu ár og vonandi verðum við enn
saman eftir önnur 7 


»
17.05.2007 01:35:44 / helgarutm
Já ég get nú ekki annað sagt en að ég fékk
frábærar fréttir í gær, ég fékk tölvupóst frá hinum eina
sanna Einari Birgi sem hljóðaði svona:
Sæl Helga Rut
Allar einkunnir komnar í hús hjá þér. Til hamingju. Minni á fundinn
18. maí kl. 12.
Kv
Einar Birgir
Þetta þýðir eingaungu eitt; ég er að verða
fullorðin og þarf að taka sjálfstæðar ákvarðanir um líf mitt.
Mín fyrsta er sú að sækja um inntökupróf í læknisfræði svo að ég
geti nú seinkað þessari stóru ákvörðun um líf mitt, ég meina 6 ára
plan "ef" allt gengur alltaf upp er ágætt. Bý bara hjá mömmu
þar sem að þvotturinn er þvegin og maturinn eldaður. Það er
ekki hægt að segja að það sé amalegt né flókið . En
annars eru síðustu dagar búnir að vera ágætir. Ég var
að vinna á kjörstað í kosningunum sem var fínt, það er snilldarlega
vel borgað fyrir eins dags vinnu. Svo eftir 15 tíma vinnudag
var drifið sig í djamm föt og brunað í partý þar sem að ég hitti
eina gamla skólavinkonu mína hana Erlu Guðrúni sem er nátturlega
allgjör snillingur. Þegar ég og Steini vorum búin að pikka
Hannes og Fjölni upp fórum við í annað partý en þetta var á vegum
sjálfstæðisflokksins í Kraganum(fyrir þá sem vita ekki hvað KRaginn
er þá eru það allir bæjirnir á höfuðborgarsvæðinu nema
Reykjavík). Þar var slatti af fólki sem að við þekktum og
margar heitar umræður í gangi ásamt reglulegum upplýsingum um
nýjustu tölur á breiðtjaldi. Við stoppuðum reyndar ekki mjög
lengi þar sem að leið okkar Fjölnis og Steina lá á NASA þar sem að
hið alræmda Eurovision partý var á vegum Páls Óskars. Palli
er snilldar DJ en því miður var allt of mikið af fólki þarna.
Maður gat varla hreyft sig, hvað þá dansað af viti. Ég verð
nú að viðurkenna það að ég var nú bara hálf hrædd þarna inni og
beið eiginlega bara eftir því að einhver stelpa eða strákur myndu
taka snapp þar sem að maður var alltaf að stíga ofan á tásur eða að
reka sig í einhvern. Það var ein stelpa þarna sem að mér
fannst vera annsi tæp, henni fannst Steini eitthvað vera fyrir sér
og var ég fljót að tosa strákana í burtu frá henni. Kvöldið
endaði svo á góðri pizzu ferð á Devitos sem klikkar sjaldan eftir
djamm.
En um næstu helgi verður Bústaðaferð hjá okkur
hópnum þar sem að HAnnes á afmæli. Bústaðaferðir klikka
mjööög sjaldan þannig að það verður hressandi að taka gott djamm
ásamt áfengi við hönd þar sem að ég man varla eftir því hvenær ég
fékk mér síðast almennilega í aðra tána
ég ætla ða segja þetta gott Góða Nótt gott
fólk
»
30.04.2007 11:30:27 / helgarutm
Ég ákvað
að skella inn litílli færslu þar sem að mér hálf
leiðist.
Ég vaknaði eldsnemma í morgun,
allveg klukkan hálf 8 og skellti mér í sund með Steina svona til
þess að hressa mig við fyrir dagin af því að ég ætlaði að læra í
allan morgun, sem ég gerði að sjálfsögðu ekki, eða reyndar
smá. Ég fer ekki í neitt próf fyrr en eftir 2 vikur og nenni
einhvernvegin ekki að byrja. Var reyndar að skoða á netinu
hvernig orðflokkagreining virkar þar sem að það er ekki beint mitt
gáfusvið... langar einhverjum að kenna mér? þetta blessaða
inntökupróf nálgast óðum og ég ætlaði að reyna að vera sniðug og
byrja að læra fyrir 2 mánuðum en ég hef nánast engu áorkað...
ótrúleg leti. Annars var helgin ágæt... fólst í partýi hjá
Pálma bassaleikaranum hans Fjölnis á föstudagin, þar sem að ég
þekkti engan og dreif mig bara heim snemma og horfði á Póker á skjá
einum, svo hitti ég Tinnu Tómas á laugardagin í gott kósí chill..
Jesús hvað þetta er leiðinlegt blogg.. ég er að hugsa um að skella
mér bara í smáralindina í smá Gleraugnakaup þar sem að ég er víst
allveg staurblind

Gleraugun sem ég er búin að velja eru einmitt frá
D&G... snilldar menn
»
26.04.2007 21:18:16 / helgarutm
Já ég er
ekki dáin, til mikillar vonbriðgði fyrir suma  nei
nei smá djók. Ég hef bara einfaldlega ekki átt mér
neitt líf, hef bara verið á fullu í skólanum sem reyndar
hefur svo FEITAST borgað sig þar sem ég þarf ekki að taka
nema 1 lokapróf já ég veit, svo klár. Þannig að
andvaka kvöldin við þetta blessaða skrifborð til 3 og 1
kvöldið til 5, takk fyrir var sem sagt þess virði.
En ég ætla nú að segja ykkur
stuttlega frá því hvað á daga mína hafa drifið seinustu
mánuði. Ég, Fjölnir, Mamma og Pabbi fórum til Florida í
afslöppunar ferð þar sem að pabbi vann reyndar alltaf megnið af
deginum og ég og Fjölnir lærðum. Þetta var samt sem áður
ótrúlega ljúft og gott. Geggjað veður og ég gat fengið mér
útskriftar kjól og eiturgræna skó í stíl afskaplega flottir þó
ég segji sjálf frá. Annars gerðum við ekkert merkilegt úti,
fórum í sólbað, aðeins í búðir og borðuðum góðan mat... Svo var
komið heim og þá tók meiri skóli við og svo framvegis. Ég fór
bara í vinnuna eins og vanalega og viti menn, ég var að reyna að
róa einn strák niður sem var í smá æðiskasti sem var ekki allveg að
virka ein þannig að eg fekk Fjölni mér til aðstoðar en nei nei...
ég tognaði í öxlinni við öll átökin við lítinn strák i 2.
bekk. Ótrúlega sorglegt, ég hálf skammaðist min þegar að ég
þurfti að útskýra fyrir tveimur mismunandi læknum hvað hafði komið
fyrir mig. Þannig að ég hef verið hálf bækluð
síðan.
Síðasta föstudag var ég að
Dimmitera. Ég,ásamt fleirum hafði nú ekki miklar vonir fyrir
þessum degi hélt að þetta yrði allt of langt og ekkert gaman.... en
WOW hvað ég hafði rangt fyrir mér. ég skemmti mér konunglega
vel, mættum um morgunin í fyrir Partý í setberginu og röltuðum
síðan upp í skóla í flottu búningunum okkar sem " The Cat in the
Hat", afskaplega flottir verð e´g að taka fram. Uppí skóla
fengum við morgunmat og kennararnir voru fengnir með í smá leiki og
sprell sem að var ótrúlega fyndið, ég hélt ég myndi pissa á mig.
Þið getið séð myndir af því þegar við vorum í skólanum hérna:
http://www.flensborg.is/Felagslif/Vefalbum/default.aspx?Path=/resources/controls/17.ascx&C=ConnectionString&Q=Gallery&Groups=87#

svo mun ég reyna að finna einhvern
sem tók myndir yfir dagin. það er nóg af þannig duglegu myndavéla
fólki... ég trassa það alltaf. Eftir morgunmatin var rölt
niðrí fjörð og tekið strætó í Smáralindina, að sjálfsögðu með
viðkomu í ríkið  Það vildi svo skemmtilega til að Raggi og
Þóra voru einmitt þarna og RAggi gat þá keypt fyrir mig. SVo
borðuðum við rosa góða Pizzu á Pizza Hut áður en við lögðum af stað
niður á Laugaveg með strætó... þar sem með einn maður var orðin
sérlega fullur vildi svo óheppilega til að hann ældi í strætóinum
sem var ekki beint skemmtilegt... og klukkan var rétt 1 gott fólk,
ákvað ég að bíða með frekari drykkju fram að kvöldi. En við
röltuðum niður laugavegin með viðkomu í Björk(tóbaksbúðina) þar sem
að Hannes þurfti endilega að kaupa sér El Presidente eðal Kúbu
vindil fyrir kvöldið. EFtir það var leiðinni haldið uppí
Keiluhölll sem var nú gletnilega gaman. Þegar líða tók á
dagin fór ég, Hannes og Sonja að tía okkur heim með frábæra
strætókerfi höfuðborgar svæðisins... það tók okkur aðeins 1 og
hálfan tíma að koma okkur frá Keiluhöllinni niðrí Fjörð þar
sem að Mamma kom og sótti okkur, svo er fólk að hneikslast á því að
maður noti þetta ekki meira? ÞEgar ég var svo loksins komin
heim var einungis einn og hálfur tími til að taka sig til, þar með
talið að hoppa í sturtu þannig að ég á hrós skilið fyrir að ná
þessu öllu! En þetta hafðist nú allt og ég sótti Hannes, Ýr og
Sonju og við drifum okkur niðrá Fjörukrá þar sem að ennmeiri gleði
tók við. EFtir matin drifum við okkur yfir á Kennaraborðið
þar sem að mesta stuðið var og tókst okkur svona með ágætum að
fylla kennarana svo vel að þeir höfðu aldrei orðið svona full á
Dimmiteringu áður Svo að þið skiljið nú allveg hve
fullir kennararnir voru þá skal ég koma með nokkur dæmi;
1.Einn splæsti á mig staup, hann hefur aldrei kennt mér hefur mest
líklega enga hugmynd um hver ég er 2. ég var farin að gefa þeim
drykkjuráð um hvað þær áttu að kaupa sér á barnum og við
"stelpurnar" ( ég og nokkrir kven kennarar) vorum að leyfa hver
annarri að smakka, voða kósí. 3. ég tók þá í hin víðfræga "Skipti
leik" sem allir kannast við sem hafa komið heim í Partý til mín og
hafa hitt Pabba minn, 4. ég fékk að mála 1 karlkynskennara, gloss,
ilmvatn og púður og gat hann víst reddað sér maskara einhversstaðar
sem hann uppgötvaði dagin eftir 5. Einn kennarinn (kvk) kveikti í
hárinu á sér og kannaðist síðan ekkert við það á mánudeginum 6.
Stærðfræði kennarinn minn hótaði að fella mig fyrir öll staupin sem
ég kom henni upp á lagið með, því að laugardagurinn var víst ekki
jafnskemmtilegur 
En já þetta er víst aðeins lengar en
ég ætlaði mér... ég gæti haldið áfram en þið sem voruð þarna; Takk
fyrir kvöldið, þetta var æði 
»
04.03.2007 11:55:49 / helgarutm
Já halló halló, ég sit hérna í eldhúsinu í
rólegheitum að bíða eftir að mamma komi heim svo að við
getum borðað, þannig að það er tilvalið að skella inn einu
bloggi á meðan. En seinustu dagar hafa verið viðburða
ríkir. Vakningardagarnir voru teknir með stæl sem að
enduðu að sjálfsögðu á balli. Við hópurinn skelltum
okkur í matinn og skemmtum okkur stórkostlega vel,
árshátíðarnefndin í ár hefur allveg toppað síðustu
árin. Rosalega vel skreytt og maturinn var líka mjög
góður. Eftir matinn var ferðinni heitið til Ragga í
næsta bæjarfélag Garðabæin þar sem að vín fór að flæða og
heit umræða fór í gang, en samt allt í góðu við vitum öll
hvert mÁLið er hehehe. Svo kom Mamma hans Þorsteins og
sótti okkur og skellti okkur inn á Broadway, við vorum í svo
miklu stuði að henni dauðlangaði bara með okkur . En ég hef
ALDREI skemmt mér jafn vel á balli, ég dansaði bara eins og
ég ætti lífið að leysa og á tímabili var ég ein með eitthvað
7 strákum og "twirlaði" bara á milli þeirra. Ég tók ekki einu
sinni eftir neinum lögreglumönnum sem komu og ekki eftir
neinum slagsmálum heldur bara hljómsveitinni og
dansgólfinu. Svo fór ég og Þorsteinn í smá
leiðangur og finna Einar Birgi Skólameistara til þess að geta
boðið honum upp í "stuttan snúning" eins og ég orðaði það við
kallin, honum leist nú ekkert á það en á endanum náði ég að
sannfæra hann um að taka einn stuttan dans og á meðan dansaði
Þorsteinn við Bryndísi námsráðgjafa.. ég er ekki frá því að
ég sá votta í smá bros hjá kallinum. Það eru ekki margir sem
geta sagt að þeir hafa dansað við sjáldan
Skólameistarann Kvöldið endaði síðan með rútuferð
heim þar sem að ég hannes og Fjölnir hálf hluppum heim á leið
upp Jófríðarstaðavegin ég reyndar á tásunum því að ég gat
ekki gengið í þessum skóm lengur. Morgunin eftir sveif
ég enn á skýi þegar við skötuhjúin vöknuðum og eldaði að
meira segja Pizzu fyrir okkur nánast from scratch!
Svo var ferðinni heitið í vinunna, já þessar
elskur geta verið ANNSI orkumiklar og klikkaðar... Ef að þetta er
ekki ein sniðugasta leið sem forvarnarstarfsemi þá veit ég ekki
hvað, ég er enn staðráðnari í að fara í háskóla eftir að ég hóf
vinnu þarna.
Svo var Laugardagurinn tekinn snemma og ég
vaknaðiu fyrir ALLAR aldir (s.s. kl 9) til að fara með MAgga bróa
að sína Pabba moral support þar sem að það var verið að breyta
nafninu á SPH og SPV í "Byr sparisjóður" og við mættum hress uppí
smárabíó þar sem að smá dagskrá var í gangi áður en að ég þurfti að
þjóta heim og gera mig reddý fyrir förðun hjá Airbrush Make-up
studio hún Krissa mín lofaði þessa stofu og þetta var líka geggjað
ég var rosalega sæt þó ég segji sjálf frá  reynu kannski
einhvern tíman að skella einni mynd af mér í náttfötunum allveg
stíííf máluð. Ég þurfti reyndar að fara í píanótíma og aðeins
vesenast um dagin allveg eins og einhver fáviti, allsstaðar var
starað á mig eins og ég væri ekki OK en ég var bara með hettuna mér
og horfði niður. En svo var ball um kvöldið og matur, en ég
verð bara að segja að hefði persónulega ekki viljað borga mig inn á
þetta, sat bara eiginlega í rólegheitum að spjalla við Fjölni,
Bryndísi og Róbert. Sá samt RUGL marga sem að ég þekkti ég
var bara shiiiiit, vinna svona margir hjá bænum? En já hefði ekki
grátið að missa af þessu.
En núna er maturinn komin og það er verið að ýta
tölvuna af borðinu.
»
28.02.2007 20:28:20 / helgarutm
Já gott fólk!! Mínar 15 mínútur af frægð
eru komnar og farnar. Það var stutt viðtal við mig á
Stöð 1 í kvöld þið getið séð það á http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338228 en
það er eitthvað smá vesen með að fá beint upp Flensborgar
viðtalið þannig að þið verðið að fara í gegnum öll frá byrjun
og spóla á endan í hverju einasta þar til að Flensborg
kemur... smá vesen en já, check it out! smá
menningarleg gildi í gangi þarna.
En ég ákvað að skella inn smá svona um mig sem að
ég fékk að stela frá síðunni hennar Báru.. Takk Bára :*
Núverandi
föt : Íþrótta Buxur, hlírabolur, íþrótta bolur og peysa ( var
að koma úr Hress
)
Núverandi skap:
frekar afslöppuð
Núverandi lykt : Eitthvað ilmvatn frá Escada,
man engan vegin hvað það heitir
Núverandi Farði : Au natural plús smá maskari
Núverandi undirföt : nærbuxur og brjóstahaldari
Núverandi áform fyrir helgina/kvöldið: Jaa... segjum bara næsta
kvöld og það er Árshátíð Flensborgar og um helgina er það
árshátíð Hafnarfjarðarbæjar.
Núverandi hatur : ja,
ég er nú annsi sátt með allt og alla nema ja kannski smá þreytt á
þessum kulda 
Núverandi hamingjusemi: Mínir yndislegu vinir, kærasti og
Fluffy(kötturinn minn)
Núverandi ósk: Að það 1. sé í vændum, er orðin ANNSI blönk
Núverandi
hár: Slétt, en frekar poofy
Núverandi dót í vösum
: Tómir
Núverandi pirringur : Hvað ég er löt við að fara í
ræktina
Núverandi
aðalhlátursefni: Ugly Betty
Núverandi tónlist :
Heyri eitthvað frá herberginu hans Bróa, veit samt ekki hvað það
er.
Núverandi bók : Draumalandið eftir Andra Snæ
Núverandi uppáhaldsleikari : Uhh... Frekar skoðanalaus
Núverandi uppáhaldsleikona : Sama. skoðanalaus
Núverandi skartgripir: litlir eyrnalokkar og hringurinn minn
sem að fjölnir gaf mér á ítalíu
Núverandi löngun : Nammi og sól
Núverandi áhyggja: hmmm... ég er bara nokkuð áhyggjulaus
Núverandi mynd: Sá Alpha Dog seinast mjög góð.
Núverandi texti á heilanum: Eitthvað Justin Timberlake lag sem
að hjakkast stöðugt í heilanum á mér.
Núverandi desktop pic : Ég skælbrosandi sitjandi á
brúninni á Edinborgarakastalanum með útsýni yfir
Edinborg
Núverandi eftirsjá : Að
hafa ekki nennt í Body Pump tíma í gær
Núverandi skemmtun : Rás 1, er að bíða eftir að Nip Tuck byrji
Núverandi vonbrigði : Allt bara í góðu
Núverandi blótyrði : njaa, þau eiga til að laumast út 
Núverandi staður : Uppí rúmi að chilla
Núverandi hljómsveit : Hef ekki átt uppáhalds hljómsveit síðan
Spice Girls á sínum tíma
Núverandi söngvari : Vesen að velja á milli
Núverandi söngkona :
jibs.. vesen
Núverandi kærasti: Fjölnir
Núverandi land : Ísland
Núverandi hlutir á veggnum : Dyrasíminn og málverk
Núverandi uppáhaldsþættir : Nip Tuck, Family Guy og American
Dad ( já ég veit steiktur húmor)
Núverandi draumur : Liggjandi á sólarbekk með góða bók eða
tónlist og með sundlaug við hliðina á mér mmmmmm nice 
Núverandi litur : Blár og grænn
Núverandi árátta : hmm, engin svo sem
Núverandi hlutur til að hlakka til : Sumarið BABí 
Núverandi Msn manneksjur : Engin eins og er ekki signuð-inn
Núverandi manneskja til að forðast : Engin held ég
Núverandi vinir :Þið vitið hver þið eruð
Núverandi sársauki
: Smá illt í bakinu en samt ok
»
27.02.2007 11:55:11 / helgarutm
Já
gott fólk nú er árshátíða tímabilið byrjað og ég fer víst á 2
með reyndar rétt 1 dags millibils, Það er víst árshátíð
flensborgarskólans og árshátíð Hafnarfjarðarbæjar.
Lúlli bæjó ætlar að bjóða öllum starfsmönnum bæjarins á
árshátíðina vegna mikilla anna og pressu á starfsmennina..
ja, ekki að ég sé eitthvað að kvarta en það eru nú kosningar
í vor og ég held að kallin sé farin að eyða álverspeningum
því að þetta hefur aldrei áður skeð. En árshátíðin hjá bænum
verður í Krikanum og mun Í svörtum fötum leika fyrir dansi á
laugardagskvöldið og svo er auðvitað rosa flottur matur,
skemmtiatriði og svo
framvegis.
Flensborgarárshátíðin verður á fimmtudagskvöldið með góðri
upphitun frá vakningardögunum sem eru á morgun og hinn.
Maturinn verður kl. 6 uppí skóla og ballið er á Broadway og
verður mín uppáhalds hljómsveit að spila hinir einu og sönnu
Milljónamæringarnir með Bogomil Font og Ragga Bjarna til
að halda stuðinu uppi.
En eins og gengur og gerist þarf maður alltaf að gera heilmikið og
undirbúa. Það þarf að redda sér kjól ( takk elsku Gyða mín þú
ert æði! :*) Skella sér í klippingu, búin að panta tíma i litun
líka á fimmtudagin, Hugsa út í hvernig maður á að mála sig (múttlan
splæsti í nýjan augnskugga) og redda sér skartgripum og
skóm í stíl við veskið heheh já kannski er ég bara smá paranoid
en svona virkar þetta strákar... Aðeins erviðara en að finna sér
nýtt bindi eða skyrtu. Svo eiga allir bara að mæta!
Sonja ekkert rugl þú kemur víst, ekki viljum við að þú fáir
fráhvarfseinkenni eftir helgina verst að Tinna T. er
ekki á landinu hefði verið stuð að taka dans-offið á
dansgólfinu.
Annars
gengur lífið bara sinn vanagang, er að kúka upp á bak í efnafræði,
er að lesa stórlega spennandi bók sem heitir Draumalandið eftir
Andra Snæ, skemmtilega pælingar hjá stráknum og skammast í sjálfum
mér fyrir að æfa mig ekki meira á píanóið, en það er víst allt í
lagi að slappa aðeins af eftir brjáluðu önnina mína fyrir
jól þar sem að ég tók 5. stigið með stæl  En já ég er að
hugsa að fá mér einhvern djúsi hádegismat þar sem að ég þarf bara
ekkert að mæta í skólan í dag
Bið að
heilsa ykkur. Helga ( hefði skellt einhverri mynd inná ef ég myndi
kunna það, er smá tölvu fötluð megið allveg commenta á það hvernig
maður gerir það )
»
23.02.2007 21:37:23 / helgarutm
Já íslensk stjórnvöld og
femínista kellingar; Takk fyrir að gera mig að
Rasista.
Búið að banna klám
ráðstefnuna.
Hvað er hræðilegra en fólk sem
vinnur við klám, er að halda upp á árshátíð og ætla að fara á
Gullfoss og Geysi, Bláa Lónið og kíkja á djammið... En
hræðilegt.
Eins gott að leyfa öllum
dópsmyglurunum, nauðgurunum og ofbeldishneigðu fólki að koma frekar
til landsins.
»
22.02.2007 17:47:54 / helgarutm
Hey.. Ligg hérna uppí rúmi að chilla og er
að horfa á nýjustu American Dad þættina, allt of ljúft.
Er að verðlauna sjálfan mig eftir að hafa vakið til 2 í nótt
að læra undir líffræði próf, þurfti að læra öll beinin í
líkamanum og alla liði og tengingar og hnjóta og veltur og
gnípur þið vitið er þaggi? En vonandi var þetta
skikanleg einkun, er að vinna í símatinu, það er bara vesen
að taka þessi lokapróf.
En hafið þið eitthvað fylgst með klámráðstefnunni
sem á eða átti að halda hérna? veit ekki allveg hvort að það er
búið að hætta við hana eða hvað. En málið er að stjórnvöld eru
eitthvað að skipta sér að því hvort að það megi halda þessa
ráðstefnu hérna því að að þeirra sögn eru þetta ekkert nema
"pimparar" hórur og barnaklám sem að felst í þessum iðnaði og
gengur eingaungu út á mannsal og niðurlægingu kvenna. Ég veit
ekki hvort að þeir hafi eitthvað kynnt sér klámiðnaðinn en t.d. þá
fær stelpa sem er að byrja í kláminu þúst á fyrsta degi tvöfald ef
ekki þrefalt hærri laun en karlmaður og karlmenn ná mjög sjaldan að
fá hærri laun en konur. Það er aðeins auðveldara að sjá þetta
kannski með dæmi; Ron Jeremy sem er kannski einn af frægustu
karlmönnunum fær lægri laun en stelpa sem er að byrja á fyrsta
degi. Þó að það séu eflaust einhverjar konur eða menn sem
neyðast út í þetta þá er þetta oft fólk sem kís þetta sem framtíðar
starf. Eiga stjórnvöld að geta valið hver kemur inn i landið
eftir því hvað hann eða hún starfar við? eða hvaða skoðanir þú
hefur? HEI afhverju bönnum við ekki öllum sem er asnalega
hárgeriðslu eða í ljótum skóm að koma til landsins. Ef ÞETTA er
ekki rasismi þá veit ég ekki hvað.
Ótrúlegt hvað við getum verið stundum
vitlaus.
»
19.02.2007 20:27:47 / helgarutm
»
17.02.2007 19:26:23 / helgarutm
Það er ótrúlega
skrítið hvað mitt littla hjarta verður alltaf glatt þegar að
föstudagur gengur í garð Því að þá fer ég bara í 2 tíma..
sem endar yfirleitt sem bara einn því að hún Dagrún
stærðfræði kennari er ekki beint sú duglegasta þegar kemur að
því að mæta í tíma, mér og mínum samnemendum til mikillar
gleði.
Svo fer ég og Fjölnir að
vinna uppí Hraunvallaskóla í heilsdagsskólanum að passa litlu
krakkana í Hraunselinu og reyna að leyfa hinu starfsfólkinu og fara
fyrr heim. Yfirmaðurinn minn heitir Magnea og er ótrúlega
nice stelpa, er með þvílikt gott tak á krökkunum og getur svo
sannarlega kennt okkur Fjölni eitthvað um hvernig á að höndla litla
krakka. Í gær var Þemadagur eða sem sagt leikjadagur og þá var
öllum 60 gríslingunum skipt niður í 3 hópa og allir sendir út til
að njóta fríska íslenska loftsins og fá smá útrás. Fjölnir
var sendir í fótbolta og ég í leiki. Það var ekki fyrr en um
morgunin í Líffræði tíma að ég fattaði að ég kann ekkert allt of
marga leiki, það er eina króna, stórfiska leikur og hlaupa í
skarðið og eitthvað rámaði mig nú í köttur og mús... En ég var bara
hress og bjartsýn á að krakkarnir myndu kunna fleiri leiki.
Þegar krakkarnir mínir voru komnir kannaðist engin við hlaup í
skarðið, allir leikir sem ég kom með voru leiðinlegir, ég er
ömurleg, allt er leiðinlegt og erum við ekki að fara að gera
eitthvað skemmtilegt?? HALLÓ!!!! Kunna krakkar ekkki í dag að leika
sér? Í 7. bekk var ég nú ennþá útí á leikskóla með krökkunum í
einakrónu, ABC og fótbolta á kvöldin, USSH, foreldrar ættu að
skammast sín að drífa ekki krakkana út, er það von að offita og hin
ýmsu heilsufars vandamál grassera hér í okkar nútíma
þjóðfélagi.
Fjölnir lenti víst í sama vandarmáli og ég: fótbolti er ömurlegur,
þú ert leiðinlegur, erum við ekki að fara að gera eitthvað
skemmtilegt?? En eins og Fjölnir sagði þá er margt fljótt gleymt
hjá þessum elskum, sami strákur og sagði við fjölni að hann væri
ömurlegur og leiðinlegur kom seinna um dagin og bað hann um að
koma í fótbolta spilið með sér. Já þessir litlu krakkar eru
ágættir.
»
16.02.2007 19:02:52 / helgarutm
já halló gott
fólk. Ég hef ákveðið að byrja að blogga aftur.. vonum bara að
það mun ganga betur en seinast Ég þurfti að fá mér nýja
síðu því að ég er náttúrlega búin að gleyma bæði
notendanafninu og passwordinu mínu. Þó að það sé
rooosalega gaman að reyna að finna út hvað það er, eyddi
allveg hálftíma í það að prufa hin ýmsu notendanöfn og
password þá var þolinmæði mín á þrotum og ég sótti bara um
nýja.
En faðir minn var að ganga
inn um dyrnar, aldrei þessu vant fyrir 8 og ég búin að elda svona
rosalega fínan mat (Rauðspretta að hætti Lauga-ás) þannig verði
mér að góðu 
»
|
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Fyrir 1715 dögum
|